
Árið 1950 ákvað Póstur og sími að færa símstöðina frá Borðeyri að Brú. Póstur og sími keypti væna spildu úr landi Mela undir starfsemina og byggði nýtt símstöðvarhús á Brú með heilli íbúðarhæð ofan á stöðvarhúsinu og stendur húsið á bakka Hrútafjarðarár rétt við brúna og vegamótin þar sem hringvegurinn og Strandavegur greinast. Einnig var reist raforkuvirkjun í Ormsá sem sér stöðinni fyrir rafmagni.
Símstöðin í Brú tók til starfa árið 1951. Um áratugaskeið var hún umdæmisstöð fyrir Vestfirði og skiptiborð talsímaþjónustu milli Norðurlands og Suðurlands. Þá var þar radíóstöð er gegndi þýðingarmiklu hlutverki og pósthús fyrir sveitina í kring. Allmargt fólk bjó í húsinu á þessum tíma, enda var starfsemin öflug og þjónustan mikilvæg. Með aukinni sjálfvirkni í fjarskiptamálum á síðari árum fækkaði fólki í Brú mjög og stöðin missti hlutverk sem umdæmis- og radíóstöð.
