Beint á leiðarkerfi vefsins

Hestasteinninn
 
HestasteinninnSunnan við gamla bæjarhúsið á Stað stendur hestasteinn. Við hann voru hestar bundnir og sér enn fyrir járnhring í einu horni hans. Steinninn var einnig notaður til að auðvelda fólki að komast á bak hestunum og átti það einkum við um börn og konur sem riðu í söðli. Loks var hann notaður sem fiskasteinn, þ.e. til að berja harðfiskinn.
Hestasteinninn
Steinn þessi tengist gamalli þjóðsögu hjá Jóni Árnasyni. Þar segir að í suðurhorni vallarins hafi verið hestarétt og í miðri réttinni hafi verið steinn um hálf þriðja alin á hvern veg. Um tilkomu þessa steins er sagt að þegar fyrst var messað í kirkjunni á Stað hafi tröllin í Tröllakirkju reiðst svo mikið að þau hafi kastað steini þessum og ætlað að brjóta með honum kirkjuna sem á þessum tíma stóð í kirkjugarðinum beint suður af gamla bæjarhúsinu. Tröllin misstu marks, steinninn lenti í réttinni og undir honum urðu fjórir hestar.
Áður var stór steinn við heimreiðina að Stað, skammt neðan við kirkjugarðinn, en við ræktunarframkvæmdir fyrir allnokkrum árum var honum ýtt suður að bæjarlæknum og sér lítt fyrir honum nú. Af mörgum hefur verið talið að þar hafi verið hluti af steininum úr Tröllakirkju en að hann hafi brotnað í tvennt og sé hestasteinninn hinn hlutinn.


Þú ert hér:

Staðarskáli » Þjóðsögur » Hestasteinn

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Information in foreign languages

  • Íslenskur fáni
  • English flag

Mynd í toppi