Beint á leiðarkerfi vefsins

Grettistak

Um Gretti sterka Ásmundsson var ein lengsta íslendingasagan rituð, Grettis saga. Grettir fæddist á Bjargi í Miðfirði sem er næsti fjörður við Hrútafjörð og því tengist sagan óhjákvæmilega Hrútafirði að einhverju leyti.

GrettistakÁ hálsinum fyrir ofan Þóroddsstaði er stór steinn sem nefnist Grettishaf. Þennan stein var Grettir sterki að dunda sér við að hefja upp á klöpp á meðan hann sat fyrri fjandmanni sínum, Kormáki á Mel í Miðfirði og fylgdarliði hans. Grettishafið vegur um 10 tonn sem enn vitnar um hversu sterkur Grettir var. Þegar Kormákur kemur taka þeir Grettis- og Kormáksmenn strax að berjast. Þorbjörn öxnamegin og hans menn frá Þóroddsstöðum komu þar að og vildi Þorbjrn sætta menn. Hann sagðist myndi leggja þeim manni lit sem leggði niður vopn. Grettir vildi halda bardaganum áfram en sá fram á tapaðan bardaga ef Þorbjörn og hans menn myndu berjast með Kormáksmönnum. Eftir þetta ríkti mikill fjandskapur milli Grettis og Þorbjörns.

Síðar reið Grettir til Þóroddsstaða og kom að Þorbirni og Arnóri syni hans við heyskap. Þar reyddi hann þeim báðum banahögg og heitir sá staður síðan Spjótsmýri. Þessi víg voru upphafið að áratuga útlegð Grettis sem endaði með því að hann var drepinn í Drangey í Skagafirði. Til stuðnings sögunni fannst í mógröf í Spjótsmýri sleggja sem augljóslega er mjög gömul, líklega frá söguöld.


Þú ert hér:

Staðarskáli » Þjóðsögur » Grettistak

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Information in foreign languages

  • Íslenskur fáni
  • English flag

Mynd í toppi