Þjóðsögur og Íslendingasögur hafa skipað stóran sess í menningu íslensku þjóðarinnar í gegnum aldirnar. Þær taka til flestra svæða landsins og svo á einnig við um Húnaþing vestra. Frægasta Íslendingasagan þar sem stór hluti sögunnar gerist á þessu svæði er Grettis saga en Grettir var fæddur á Bjargi í Miðfirði og ólst þar upp. Ýmsar þjóðsögur eiga sér einnig stað á þessu svæði og má þar nefna söguna Kerlingar yfir Hrútafjarðarháls og um hestasteininn sem stendur á landi Staðar í Hrútafirði.