Beint á leiðarkerfi vefsins

GistihúsGistihús Staðarskála er staðsett miðja vegu milli Reykjavíkur og Akureyrar og því hefur Staðarskáli löngum verið vinsæll hvíldarstaður fyrir ferðalanga á þessari leið. Snæfellsnesið og Strandirnar eru skammt undan með sínar náttúruperlur og í nánasta nágrenni Staðarskála er einnig margt vert að skoða.

Gistihús Staðarskála er aðili að Ferðaþjónustu bænda en aðilar innan þeirra samtaka bjóða upp á fjölbreytta gistimöguleika víðsvegar um landið.  Í gistihúsi Staðarskála eru 26 tveggja manna herbergi í tveimur húsum. Aðalbyggingin var tekin í notkun í júní árið 1994 og eru þar 18 tveggja manna herbergi, rúmgóður veitingasalur sem tekur um 70 manns í sæti og notarleg setustofa. Hún hentar einkar vel fyrir fundi og námskeið þar má ylja sér við eldiviðarofn eða leika á píanó á góðum stundum. Sumarið 2005 bættust 8 tveggja manna herbergi við þegar nýtt einingahús frá SG-húsum á Selfossi var sett upp við hliðina á aðalbyggingunni.

Öll herbergin eru með baðherbergi, sjónvarpi með innlendum og erlendum stöðvum, síma, hraðsuðukatli, hárblásara, útvarpsvekjara auk þess sem þráðlaus internettenging er inni á þeim. Samkvæmt stuðli Ferðaþjónustu bænda er gistihúsið í flokk IV sem kallast sveitahótel og þarf því að uppfylla þessi skilyrði. Einnig er gistihúsið flokkað sem þriggja stjörnu hótel samkvæmt stuðli Ferðamálaráðs Íslands.    


Þú ert hér:

Staðarskáli » Gistihús

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Information in foreign languages

  • Íslenskur fáni
  • English flag

Mynd í toppi