Yfir Hrútafjarðarháls, frá Brandagili í Hrútafirði að Húki í Miðfirði, er um 9 km gönguleið yfir friðsælt og fallegt land. Þar liggja jeppa -, reið- og gönguleiðir sem hægt er að fylgja og er hæðarmunur um 240 metrar. Þegar vel viðrar er útsýni frá hálsinum yfir í 7 sýslur.
Vötn eru á víð og dreif yfir Hrútafjarðarháls og þrífst mikið dýralíf í og við þau. Mjög mikið fuglalíf er á hálsinum og er einkar stór og athyglisverð himbrimabyggð. Hafa verður í huga þegar skoða á himbrima að hvert himbrimapar helgar sér eitt vatn, þannig að byggðin er frekar strjál.