Beint á leiðarkerfi vefsins

Í ánni Síká er allmikið hverasvæði þar sem ferðalangar geta laugað sig. Þessar laugar nefnast Hveraborg eftir klettaborg sem er aðeins norðan við svæðið og vestan við ánna. Hveraborg er 18,5 km frá botni Hrútafjarðar og til að komast þangað er hægt að aka um 11 km jeppaslóð upp fyrir bæinn Fosssel og að afréttarhliðinu. Þaðan tekur við um 1,5 klukkutíma ganga meðfram ánni eftir stikaðri slóð. Gönguleiðin er rúmlega 7 km að lengd og hæðarmunur er um 260 metrar.

Skáli var reistur við hverina árið 2000 og er hægt að nálgast lykil að honum í Staðarskála. Fyrir neðan skálann stendur laug sem er hlaðin úr grjóti og þétt á milli með frauðplasti. Ofan í hana er vatn leitt með röri sem liggur úr uppsprettu nokkrum metrum ofar. Vatnið í lauginni getur verið nokkuð heitt þannig að hætt er á því að fólk brenni sig. Hægt er lækka hitistigið á vatninu með því að færar rörið til og stöðva þannig rennsli ofan í laugina og ausa köldi vatni úr ánni ofan í hana. Aðeins neðar í ánni er dæld í árfarveginum þar sem myndast hefur lítil laug en hún er nokkuð kaldar en sú hlaðna.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré

Information in foreign languages

  • Íslenskur fáni
  • English flag

Mynd í toppi