Fjölbreyttar gönguleiðir eru í Húnaþingi vestra og hefur Ferðamálafélag Húnaþings vestra gefið út gönguleiðakort til að gera ferðamönnum þessar leiðir aðgengilegri. Á bakhlið kortsins er að finna nánari upplýsingar um hverja gönguleið fyrir sig s.s. lengd og hvað er markvert að skoða. Þar eru einnig upplýsingar um þær reiðleiðir og jeppaslóðir sem merktar eru inn á kortið.
Á meðal þeirra gönguleiða sem merktar eru inn á kortið og eru í nánasta nágrenni Staðarskála eru leiðirnar yfir Hrútafjarðarháls, frá Óspaksstöðum og að Hveraborgum. Gönguleiðakortið er m.a. til sölu í Staðarskála og í móttöku Gistihúss Staðarskála.