Illugastaðir á Vatnsnesi er þekktur sögustaður á Íslandi þar sem þeir atburðir áttu sér stað sem leiddu til seinustu aftökunnar á Íslandi árið 1830.
Hindisvík er vík á norðurtá Vatnsness. Þar er friðlýst selalátrur og því góður möguleiki á því að sjá sel.
Hvítserkur er nokkuð sérstakur klettur sem rís úr sjó í vestanverðum botni Húnaflóa. Margar fuglategundir eiga aðsetur í Hvítserki.
Borgarvirki er klettaborg úr 10-15 metra háu stuðlabergi sem rís upp af ásnum milli Vesturhóps og Víðidals. Á hæsta vegg borgarinnar er útsýnisskífa.
Kolugljúfur er stórfenglegt gljúfur í Víðidalsá, rúmlega km að lengd og víða 20-25 metra djúpt. Áin fellur í gljúfrið í tveimur fossum.
Bjarg í Miðfirði er fæðingarstaður Grettis sterka Ásmundssonar, aðalsöguhetju Grettissögu. Þar er minnismerki um Ásdísi móður Grettis og friðlýst þúfa, Grettisþúfa, þar sem Ásdís á að hafa grafið höfuð Grettis.
Gauksmýrartjörnin er staðsett sunnan þjóðvegar beint á móti Gauksmýri. Tjörnin þurrkaðist upp um 1960 en hefur nú verið endurheimt. Þar er afar fjölbreytt fuglalíf, um 15 – 20 tegundir halda þar til að staðaldri yfir sumartímann.